Fræðsla
Eftir aðgerð
Aðgerðir geta verið stór inngrip fyrir stoðkerfið. Endurhæfingin og fyrstu skref eftir aðgerð eru mikilvæg til að líkaminn geti náð fullum styrk aftur og hefur mikil áhrif á tíma í bataferli.
Verkir í hné?
Hnéverkir er algengt stoðkerfis vandamál. Orsökin geta verið mismunandi, þau geta komið til vegna trauma/áverka á hnéð eða ofálags. Eftir því hvers konar meiðsli um sé að ræða er meðferðin og nálgunin mismunandi.
Í þessum pistli förum við yfir nokkrar týpur af hné vandamálum og hvað er til ráða.
Ökklatognun - Hvað er til ráða?
Tognun á ökkla verður þegar ökklinn teygist skyndilega. Það getur leitt til þess að blæðing eða bólga myndast á ökklanum. Ökklatognanir eru sársaukafullar og hafa áhrif á virkni og hreyfugetu ökklans. Rétt enduhæfing er forsenda til góðs bata.
Hvað er vöðvabólga?
Vöðvabólga er orð sem fólk notar oft þegar þau eru með verki/stífleika í hálsi og herðum.
En hvað er vöðvabólga?
Hvað eru verkir?
Guttormur Naprapat fer yfir það í stuttu myndbandi hvað verkir eru og hvað það er sem gerist í taugakerfinu.
Hvað á ég að æfa?
Hvaða tegund þjálfunar skilar mestum árangri fyrir heilsuna?
Hér fer Guttormur Naprapat yfir það í stuttu myndbandi.
Hvað er brjósklos?
Brjósklos er niðurbrot/slit á disknum sem liggur milli tveggja hryggjarliða. Brjósklos getur verið allt frá því að vera einkennislaust (þú finnur ekki fyrir verkjum), til þess að valda miklum verkjum með leiðslu út í hendur og fætur.
Hálsrígur - hvað er til ráða?
Hálsrígur lýsir sér sem verkur eða stífleiki í hálsi ásamt því að hreyfigetan í hálsinum verður takmörkuð. Fólk fær oft hálsríg eftir hafa sofið næturlangt í ”rangri líkamsstöðu” eða eftir skyndilega hreyfingu á hálsinum.
Þrjár æfingar sem þú ert ekki að gera fyrir þín mjóbaksvandamál!
Arnór Naprapat fer yfir það í stuttu myndbandi hvaða æfingar hjálpa þér með þín mjóbaksvandamál!
Þrjár æfingar sem þú ert ekki að gera fyrir öxlina þína!
Arnór Naprapat fer yfir það í stuttu myndbandi hvaða æfingar hjálpa þér með þín axlar vandamál!
Hvað er tennisolnbogi?
Tennisolnbogi er algengt stoðkerfis vandamál í samfélaginu í dag. Tennisolnbogi veldur sársauka á úthlið efri framhandleggsins og er yfirleitt af völdum ofálags. Verkirnir geta komið skyndilega og leitt til skerta starfsgetu.