Hönd

Verkir í hönd geta komið frá álagi, sinabólgu, liðbólgu, tognun í vöðvum eða sinum, eða áverkum. Algeng vandamál eru t.d. Carpal Tunnel syndrome (þrýstingur á miðtaug), sinabólgur í fingrum eða úlnlið og slit í liðum. Slík meiðsli koma oft fram hjá fólki sem nota hendurnar mikið í vinnu eða íþróttum.

Meðferðir eins og liðkun, mjúkvefjameðferð, hitameðferð og markvissar styrktar- og teygjuæfingar hjálpa til við að minnka spennu, draga úr verkjum og bæta hreyfanleika. Slík meðferð styður einnig við bata og viðheldur styrk og virkni handar og úlnliðs.