Vöðvabólga í hálsi
Verkir í hálsi eru mjög algengir og oftast vegna statísks álags, kyrrsetu við tölvuvinnu eða streitu. Þetta veldur spennu og ójafnvægi í vöðvum og liðum, bæði í hálsinum og kringum hálsinn. Aðrar algengar orsakir á verkjum í hálsi er t.d. whiplash eftir slys, stífleiki brjóstbaki, ofálag, léleg líkamsstaða eða í versta falli brjósklos.
Dæmigerð einkenni:
- Verkur í hálsi og öxlum
- Höfuðverkur eða svimi
- Verkur við hreyfingu eða í hvíld
- Erfiðleikar við djúpa öndun
- Stundum leiðsla niður í öxl/hendi
- Stífleiki og minni hreyfigeta í hálsinum/brjóstbaki
Hvað getur þú gert sjálfur?
- Í akút fasanum: minnka álag, nota ís og hvíld
- Byrjaðu aftur að hreyfa hálsinn varlega þegar verkir minnka
- Bættu líkamsstöðuna – haltu höfðinu yfir herðum og opnaðu brjóstkassann
- Gerðu einfaldar æfingar fyrir brjóstbak, háls og axlir (t.d. Atlas-stretch, Spiderman-æfing eða liggjandi í 90-gráðu stöðu í 5–15 mínútur)
- Forðastu langvarandi kyrrsetu – skiptu á milli sitjandi og standandi stöðu, og hreyfðu þig reglulega
Mikilvægt er að finna út afhverju þú hefur verki (í gegnum greiningu) frekar en aðeins meðhöndla einkennin.
Við hjá Toppheilsu viljum hjálpa þér að koma til baka sterkari
Í okkar liði eru reyndir meðferðar- og endurhæfingar aðilar (Naprapatar) sem hafa mikla reynslu á sínu sviði.
Hafðu samband og við tengjum þig við Naprapata sem hjálpar þér að koma sterkari til baka.