Vöðvabólga í öxlum

Verkir í öxl eru mjög algengir og oftast vegna impingement/þrengslum í öxl þar sem sinar eða vöðvar verða fyrir bólgum sem gerir að verkum að það verður minna útrými fyrir axlarliðinn að hreyfa sig. Aðrar algengar orsakir eru frozen shoulder (frosinn öxl), vöðvaspenna, rotator cuff vandamál eða of mikið álag.

Af hverju gerist þetta?

Öxlin er flókin liður sem byggir á samspili vöðva, sina, liðbanda o.s.frv. Vandamál í öxlinni geta komið vegna skyndilegs álags, endurtekinnar hreyfingar eða ofnotkunar. Líkaminn er heild, þannig að vandamál í hálsi, brjóstbaki eða jafnvel mjöðm geta einnig valdið eða auknum verk í öxl.

Dæmigerð einkenni:

  • Verkur þegar þú lyftir hendinni
  • Verkur á nóttu (þegar þú liggur kyrr)
  • Verkur við armbeygjur, ýtingar eða þrýsting 
  • Verkur fremst í öxlinni (oft tengt biceps/tvíhöfða sininni)
  • Stífleiki og minni hreyfigeta

Hvað getur þú gert sjálfur?

  • Í akútfasanum: RICE (hvíld, ís, upphækkun, þrýstingur)
  • Byrjaðu aftur að hreyfa öxlina varlega þegar bráðaverkir minnka.
  • Gerðu einfaldar styrk- og hreyfingaræfingar fyrir bak öxl, brjóstbak.
  • Forðastu hreyfingar sem valda verkjum

Við hjá Toppheilsu mælum með virkri meðferð sem bætir hreyfigetu og vöðvajafnvægi. Í sumum tilfellum er gott að nota bólgueyðandi lyf til að draga úr bólgum, en lyf ein og sér laga ekki orsökin. Mikilvægt er að finna út afhverju þú hefur verki (í gegnum greiningu) frekar en aðeins meðhöndla einkennin.

Við hjá Toppheilsu viljum hjálpa þér að koma til baka sterkari.

Í okkar liði eru reyndir meðferðar- og endurhæfingar aðilar (Naprapatar) sem hafa mikla reynslu á sínu sviði.

Hafðu samband og við tengjum þig við Naprapata sem hjálpar þér að koma sterkari til baka.