Hvað er tennisolnbogi?

Tennisolnbogi er algengt stoðkerfis vandamál í samfélaginu í dag. Tennisolnbogi veldur sársauka á úthlið efri framhandleggsins og er yfirleitt af völdum ofálags.  Verkirnir geta komið skyndilega og leitt til skerta starfsgetu. 

Algeng einkenni við tennisolnboga:

1. Verkir við olnbogan, sérstaklega við vinnu sem reynir mikið á framhandlegginn t.d. tölvuvinna, lyfta þungum hlutum osfrv. 

2. Verkirnir geta leitt upp í öxl, úlnlið og fingur.

3. Verkir við íþróttir eins og tennis. 

Hvað er það sem orsakar tennisolnboga? 

Tennisolnbogi myndast við of mikið álag á vöðva/sinar sem vöðvarnir/sinarnar sjálfar höndla ekki. Verkir eru viðvörunarbjöllur frá líkamanum sem eru að segja þér að ef þú heldur áfram í sama takti, geti það endað illa. Svæðið sem er að gefa frá sér verki þarfnast hvíldar/minna álag. 

Æfingar fyrir tennisolnboga: 

Hér að neðan er vídeó af Hjörvari Naprapat að sýna tvær einfaldar æfingar til þess að minnka verki í olboganum!

https://www.youtube.com/shorts/xjqE3pMdM8g

Við hjá Toppheilsa.is viljum hjálpa þér að koma til baka sterkari.

Í okkar liði eru reyndir meðferðar- og endurhæfingar aðilar (Naprapatar) sem hafa mikla reynslu á sínu sviði.

Hafðu samband og við tengjum þig við Naprapata sem hjálpar þér að koma sterkari til baka.