Fótur

Verkir í fæti geta haft margar orsakir og eru algengir bæði hjá þeim sem stunda íþróttir og í daglegu lífi. Helstu ástæður eru oft álag, tognun í liðböndum, sinabólga, plantar fasciitis (bólga í ilinni) eða áverkar eftir rangar hreyfingar eða mikla notkun.

Meðferðir eins og liðkun, mjúkvefjameðferð, hitameðferð, teygjur og styrktaræfingar geta hjálpað til við að minnka spennu í vöðvum og sinum, bæta hreyfanleika og styðja við eðlilega starfsemi fótarins. Slík meðferð getur einnig aukið blóðflæði og hjálpað líkamanum að jafna sig eftir álag.