Hvað er brjósklos ?
Brjósklos er niðurbrot/slit á disknum sem liggur milli tveggja hryggjarliða. Brjósklos getur verið allt frá því að vera einkennislaust (þú finnur ekki fyrir verkjum), til þess að valda miklum verkjum með leiðslu út í hendur og fætur.
Einkenni við brjósklos:
Verkir myndast þegar miðtaugakerfið skynjar hugsanlega eða raunverulega vefjaskemmd. Ef brjósklosið er lítið þá eru yfirleitt minni verkir og hjá sumum engir verkir. Því stærra sem brjósklosið er því meiri líkur á miklum verkjum.
Við brjósklos getur myndast núningur/þrýstingur á taugar sem getur leitt til taugaverki/leiðslu út í hendur eða fætur (fer eftir því hvar brjósklosið situr í hryggnum).
Brjósklos í mjóbaki:
Ef brjósklosið situr í mjóbakinu, yfirleitt milli hryggjarliða L4/L5 eða L5/S1 þá getur það leitt til leiðslu út í fót. Leiðslan fer frá hryggnum og stundum alla leið niður í hæl. Þessi einkenni kallast Ischias.
Brjósklos í hálsi:
Brjósklos í hálsi er ekki jafnt algengt og brjósklos í mjóbaki. Brjósklosið situr oftast milli hryggjarliðina C5/C6 og getur orsakað leiðslu út í putta. Lýsir sér sem konstant og þreyttandi verk.
Bjrósklos í brjóstbaki:
Ekki jafnt algengt og brjósklos í mjóbaki og hálsi en getur þó komið fyrir. Brjósklos í brjóstbaki getur einnig leitt til leiðslu út í t.d. hendur/axlir.
Hvernig og afhverju myndast brjósklos?
Orsökin við brjósklos getur verið margþættur. Oft fær fólk bjrósklos þegar það setur ákveðið álag á bakið sem það ræður ekki við og með tímanum getur það orsakað brjósklos.
Hlutir sem geta aukið líkurnar á því að þú getur fengið brjósklos:
- Erfðir
- Ofþyngd
- Þungar lyftingar - ef líkaminn er ekki tilbúinn fyrir það álag.
- Reykingar
Hversu langan tíma tekur það að verða verkjarlaus af brjósklosi?
Flestir verða mikið betri eða verkjarlaus eftir 2-16 vikur. Fáðu hjálp frá fagaðila á meðan verkirnir standa til þess að auka líkurnar á góðum bata.
Við hjá Toppheilsa.is viljum hjálpa þér að koma til baka sterkari.
Í okkar liði eru reyndir meðferðar- og endurhæfingar aðilar (Naprapatar) sem hafa mikla reynslu á sínu sviði.
Hafðu samband og við tengjum þig við Naprapata sem hjálpar þér að koma sterkari til baka.