Ert þú með verki í hnénu?
Hnéverkir er algengt stoðkerfis vandamál. Orsökin geta verið mismunandi, þau geta komið til vegna trauma/áverka á hnéð eða ofálags. Eftir því hvers konar meiðsli um sé að ræða er meðferðin og nálgunin mismunandi. Meðhöndlun hjá naprapata ásamt sérsniðnum æfingum fyrir þitt hné getur hjálpað þér að verða verkjalaus!
Afhverju fæ ég verki í hnéð?
Það eru aðallega tvær ástæður fyrir hnéverkjum: akút trauma/slys/áverkar eða álagsmeiðsli á hnéð. Trauma verður oft við íþróttaiðkun og það getur orsakað meiðsli eins og krossbands-, liðbanda - og liðþófa slitum. Álagsmeiðsli á hné koma fyrir þegar við setjum ákveðið álag á hnéð sem það ræður ekki við, með tímanum ræður hnéð ekki við þetta álag og það getur orsakað verki í hné.
Hér eru mismunandi greiningar á hné meiðslum:
Jumper's knee/hopparahné:
Við endurtekið og mikið álag getur myndast bólga í hnéskeljarsininni/patella sininn. Það getur orsakað verki/bólgum undir hnéskílinni, verki við hopp/hlaup/labb ásamt verkjum við að beygja hnéð.
Meðhöndlun á jumper's knee er gerð með markvissum æfingum til þess að styrkja hnéskeljarsinina/patella sinina ásamt álagstýringu á hnénu. Unnið er líka í því að styrkja og auka hreyfigetuna í mjóbaki/spjaldhryggi þar sem taugarnar sem virkja lærvöðvan sitja þar.
Runner's knee:
"Runner's knee" er verkur sem myndast utanvert á hnénu. Verkurinn myndast yfirleitt við endurtekið og mikið álag. Algengt er að hlauparar og hjólreiða fólk upplifi svona verki, utanvert á hnénu.
Einkenni við Runner's knee eru t.d. verkir við hlaup/hopp og hjól. Verkurinn getur minnkað eða horfið alveg þegar maður hættir að hlaupa en kemur fljótt aftur þegar maður byrjar að hlaupa aftur!
Meðhöndlun á "Runner's knee" er gerð með markvissum æfingum til þess að styrkja mjaðmir, ökkla, hnéð og vöðvana í kringum hnéð. Unnið er líka í því að styrkja og auka hreyfigetuna í mjóbaki/spjaldhryggi þar sem taugarnar sem virkja lærvöðvan og rassinn sitja þar.
Með því að stykrja hnéð og strúktura nálægt/kringum hnéð þá geturu minnkað líkurnar á að fá "Runner's knee". Það er því ótrulega mikilvægt að stykrja mjaðmirnar, hnéð og ökklarna þegar kemur að almennri styrktarþjálfun fyrir hnéð.
Slitgigt/artros í hné:
Slitgigt í hné gefur einkenni eins og stífleika og verki við hreyfingu ásamt verk í hvíld. Rannsóknir hafa sýnt að æfingar hjálpi til með að fyrirbyggja slitgigt í hné ásamt því að það hjálpar fólki sem er nú þegar með slitgigt að vera með minni verki. Með réttri meðhöndlun og endurhæfingu eru miklar líkur á því að þér mun líða betur í hnénu!
Æfingar og endurhæfing:
Það eru til fullt af æfingum sem við getum gert til þess að styrkja hnéð. Hér eru nokkrar almennar æfingar sem við mælum með að þú prófir!
Æfing 1 - hné réttur með kodda:
Æfing 2 - hné réttur á rúllu
Æfing 3 - Hné beygjur sitjandi:
Æfing 4 - 90 gráður við vegg
https://www.youtube.com/shorts/a-PFMwAIf0Q
Vörur frá Toppheilsa.is sem gætu hjálpað þér með þín hné meiðsli:
Hnéfix - Vinnur á bólgum, verkjum og stirðleika í hnjám
https://toppheilsa.is/products/hne-fix
Frost-rehab/kæli- og þrýstimeðferðar tæki:
Við hjá Toppheilsa viljum hjálpa þér að koma til baka sterkari.
Í okkar liði eru reyndir meðferðar- og endurhæfingar aðilar (Naprapatar) sem hafa mikla reynslu á sínu sviði.
Hafðu samband og við tengjum þig við Naprapata sem hjálpar þér að koma sterkari til baka.