Ert þú með höfuðverki?
Höfuðverkur er eitt algengasta stoðkerfis vandamál fólks í nútímasamfélagi. Flestir upplifa höfuðverki einhvern tímann á lífsleiðinni, en fyrir suma getur hann verið tíður og truflandi í daglegu lífi. Höfuðverkir getur stafað af ýmsum orsökum, allt frá spennu og álagi til alvarlegri undirliggjandi ástæðna. Það er mikilvægt að skilja mismunandi gerðir höfuðverks til að finna réttu lausnirnar!
Algengar týpur af höfuðverkjum
Spennings höfuðverkir (Tension headache):
Þetta er algengasta gerð höfuðverks. Hann lýsir sér oft sem þrýstingsverk í kringum höfuðið, sérstaklega í enni, hnakka og hálsi. Hann stafar yfirleitt af vöðvaspennu vegna streitu, lélegri líkamsstöðu, langvarandi skjátíma eða skorts á hvíld. Einkenni geta varað frá 30 mínútum upp í nokkra daga.
Mígreni:
Mígreni er oft miklu alvarlegri en venjulegur höfuðverkur. Hann kemur yfirleitt í áföllum, fylgir ljós- og hljóðnæmi, ógleði og stundum sjóntruflanir. Höfuðverkirnir geta varað í klukkustundir eða daga. Erfðaþættir og ýmsir kveikjar eins og hormónabreytingar, matvæli, svefnskortur eða veðurfar geta spilað inn í.
Cluster höfuðverkir:
Þetta er mjög sársaukafull gerð af höfuðverkjum sem kemur í „cluster“ – mörgum áföllum á stuttum tíma. Höfuðverkirnir eru oft einhliða, mjög sterkir og getur fylgt tárandi auga eða nefstíflu. Áföllin geta varað í 15 mínútur upp í 3 klukkustundir og koma oft á sama tíma dags.
Aðrar gerðir höfuðverkja:
Höfuðverkur vegna ofnotkunar lyfja (rebound) – kemur við of tíða notkun verkjalyfja.
Höfuðverkur vegna sinus – tengdur sinusbólgu eða ofnæmi.
Cervicogenic höfuðverkur – stafar af vandamálum í hálsi og hálsvöðvum.
Hvað get ég sjálf/ur gert til að minnka höfuðverki?
Til að byrja með er gott að skoða lífsstílinn:
Hvíld og streitustjórnun – nægur svefn, regluleg hreyfing, slökunartækni eins og djúpöndun eða hugleiðslu.
Vökvun og næring – skortur á vatni eða ákveðnum næringarefnum getur ýtt undir höfuðverkja.
Líkamsstaða – forðastu að hanga yfir tölvuskjá eða síma.
Kæling/hiti – margir finna létti við kælingu á enni eða hita á hálsi.
Hreyfing – léttar teygjur fyrir háls og axlir geta leyst upp spennu.
Ef höfuðverkur er tíður eða sterkur er mikilvægt að leita til fagfólks til að útiloka alvarlegri orsakir.
Hversu langan tíma tekur að losna við höfuðverk?
Það er mjög mismunandi eftir einstaklingi. Margir finna mun eftir einföldum lífsstílsbreytingum á nokkrum dögum, en viðvarandi vandamál geta þurft lengri tíma og markvissa meðhöndlun. Ef ekkert virkar er gott að skoða faglegar lausnir og tæki sem styðja við náttúrulega endurhæfingu.
Við hjá Toppheilsu viljum hjálpa þér að lifa verkjalaust
Í okkar vöruúrvali finnur þú hágæða tæki sem eru sérstaklega hönnuð til að minnka spennu, verki og bæta líkamsstöðu – sem oft er rótin að höfuðverkjum.
Hálsfix: Þægilegt tæki sem sameinar tog, nudd og innrauðan hita á hálsinn. Margir upplifa fljótan létti á spennu höfuðverkjum og cervicogenic höfuðverkjum vegna þess að það slakar á vöðvum í hálsi og öxlum.
Háls-tog: Einfalt tog-tæki sem dregur úr þrýstingi í hálsliðum og getur dregið verulega úr höfuðverkjum sem stafar af hálsvanda.
Nuddbyssa með hita og kælingu: Frábært tæki til þessa að leysa upp vöðvaspennu.
FROST Rehab: Kulda- og þrýstings meðferðar tæki sem hjálpar við bólgur og verkjum, góður kostur við mígreni eða sinus-tengdum höfuðverkjum.
Tempur koddar: Stuðningsríkir koddar sem halda hálsi í réttri stöðu á nóttunni og geta fyrirbyggt morgun höfuðverki.
Komdu við í Bæjarlind 6 í Kópavogi eða skoðaðu vörurnar á toppheilsa.is. Við erum með reynda naprapata í Toppheilsu sem geta einnig leiðbeint þér um rétta notkun tækja og meðferðir til að koma þér sterkari til baka.
Hafðu samband – við finnum lausn sem hentar þér!