Höfuð Og Háls
Í höfði og hálsi geta komið fram ýmsir kvillar sem tengjast vöðvum, liðum og taugum. Algengt er að fólk upplifi höfuðverki, stífleika í hálsi, eða verki sem geta leitt niður í herðar og hendur. Slík einkenni tengjast oft spennu í vöðvum, slæmri líkamsstöðu eða miklu álagi í daglegu lífi.
Í hálsinum eru hryggjarliðir með diskum/brjóski á milli. Ef diskurinn bólgnar eða rifnar getur myndast brjósklos, sem getur valdið þrýstingi á taugar. Þá geta komið fram verkir í hálsi, dofi, náladofi eða verkir sem leiða niður í handlegg. Slík einkenni geta einnig valdið stífleika og takmarkaðri hreyfigetu í hálsi.
Höfuðverkir geta oft tengst spennu í hálsi- og herðum. Þegar vöðvar verða stífir eða ofspenntir getur það aukið álag á liðamót og taugar í hálsi, sem getur leitt til svokallaðs spennuhöfuðverks.
Tog og liðkun á hálsi getur hjálpað til við að minnka þrýsting á liði og taugar, auka hreyfigetu og draga úr vöðvaspennu. Með markvissri meðferð og mjúkum hreyfingum er hægt að bæta blóðflæði, minnka stífleika og styðja við náttúrulega hreyfingu hálsins. Þetta getur oft dregið úr verkjum og bætt líðan til lengri tíma.
-
Infrarauður Bakstur
Verð 17.990 ISKVerðStykkja verð / perÚtsöluverð 17.990 ISK -
Posture Corrector
Verð 5.990 ISKVerðStykkja verð / perÚtsöluverð 5.990 ISK -
Hálskragi - Thuasne Collar C2 Plus
Verð 9.092 ISKVerðStykkja verð / perÚtsöluverð 9.092 ISK




