Eftir aðgerð

Aðgerðir geta verið stór inngrip fyrir stoðkerfið. Endurhæfingin og fyrstu skref eftir aðgerð eru mikilvæg til að líkaminn geti náð fullum styrk aftur og hefur mikil áhrif á tíma í bataferli.

Hér að neðan förum við yfir fyrstu skrefin og ráðleggingar eftir aðgerð.

Leiðin að bata

Þegar á endurhæfinguna er litið þá er mikilvægt að fara í gegnum öll skrefin í ferlinu til að ná fullum bata á sem skemmstum tíma og koma í veg fyrir að meðast aftur eða frekari stoðkerfisvandamál.

  • 1. Strax eftir aðgerð

    Markmið:
    Vernda aðgerðarsvæðið og draga úr verkjum


    • Verkjastilling (kæling, þrýstingur, upphækkun, lyf)

    • Umhirða sár og sýkingarvarnir

    • Léttar hreyfingar, bæta hreyfigetu

    • Læra öruggar hreyfingar (fara á fætur, nota hækjur/göngugrind)
  • 2. Snemmbúin endurhæfing

    Markmið:
    Endurheimta grunn-hreyfigetu


    • Endurhæfingarferli hefst

    • Léttar liðleika- og hreyfiferilsæfingar

    • Virkjun vöðva án mikils álags (vöðvasamdráttur, NMES)

    • Minnka bólgu

    • Smám saman aukin dagleg virkni
  • 3. Styrkur og hreyfanleiki

    Markmið:
    Byggja upp styrk og liðleika


    • Stigvaxandi styrktaræfingar

    • Jafnvægis- og samhæfingaræfingar

    • Teygjur til að koma í veg fyrir stirðleika

    • Bætt líkamsbeiting

    • Minnka þörf á hjálpartækjum
  • 4. Virkni- og færniþjálfun

    Markmið:
    Snúa aftur til daglegs lífs


    • Æfingar sem líkja eftir daglegum verkefnum (tröppur, lyftingar, vinna)

    • Úthaldsþjálfun

    • Starfs- eða íþróttatengd þjálfun ef við á

    • Aukið sjálfstæði og öryggi
  • 5. Endurkoma í fulla virkni

    Markmið:
    Koma í veg fyrir endurmeiðsli


    • Smám saman endurkoma í hreyfingu og íþróttir

    • Viðhaldsæfingar heima

    • Áhersla á rétta tækni

    • Samþykki sérfræðings "Return to Play"

Kæli og þrýstimeðferð

Fyrstu dagana/vikur eftir aðgerð eru kæling (ís) og þrýstingur (compression) mikilvæg til þess að hjálpa líkamanum að bregðast rétt við bólgu og flýta fyrir bata.

  • ❄️ Kæling

    Kæling veldur því að æðar dragast saman
    °
    Dregur úr bólgu og bólgusvörun
    °
    Minnkar blæðingu og vökvasöfnun
    °
    Deyfir verki með því að hægja á taugaboðum
    °
    Getur dregið úr aukaskemmdum á vefjum í kringum aðgerðarsvæðið

  • 👐 Þrýstingur

    Þrýstingur hjálpar með því að:
    °
    Hindra að vökvi safnist upp í vefjum
    °
    Minnka bólgu og marbletti
    °
    Veita stuðning og auka þægindi
    °
    Hjálpa blóðrásinni að flytja vökva aftur frá svæðinu

  • 🤝 Af hverju saman?

    Þegar kæling og þrýstingur eru notuð saman:
    °
    Minnkar bólga hraðar og betur
    °
    Verkir verða minni
    °
    Hreyfigeta getur batnað fyrr
    °
    Batatími getur styst

TENS og NMES

TENS og NMES eru bæði rafmeðferðir sem nota rafstrauma til að draga úr verkjum eða bæta vöðvastarfsemi. TENS beinist fyrst og fremst að taugaleiðum til að linna verki með því að nota hátíðni rafstraum og trufla verkjaboð áður en þau ná til heilans. NMES virkar hinsvega þannig að það örvar vöðva beint með því að nota rafboð til að líkja eftir boðspennu frá miðtaugakerfinu, sem veldur vöðvasamdrætti.

Þannig þjóna straumarnir ólíkum tilgangi:

Tens: Trufla taugaboð, minnka verki
NMES: Koma í veg fyrir rýrnun og viðhalda tengingu á milli vöðva og miðtaugakerfis

Leigja TENS/NMES

Við hjá Toppheilsa viljum hjálpa þér að koma til baka sterkari.

Í okkar liði eru reyndir meðferðar- og endurhæfingar aðilar (Naprapatar) sem hafa mikla reynslu á sínu sviði.

Hafðu samband og við tengjum þig Naprapata og sem hjálpar þér að koma sterkari til baka.