Útbungnun í mjóbaki

Útbungun í mjóbaki verður þegar diskurinn sem liggur á milli tveggja hryggjarliða bungar út fyrir sitt eðlilega form. Diskarnir virka meðal annars sem höggdeyfar milli hryggjarliðanna og hjálpa hryggnum að hreyfast mjúklega.

Útbungun getur verið allt frá því að valda engum einkennum yfir í að valda verkjum í mjóbaki, stífleika eða einkennum sem leiða niður í fót.

Það er mikilvægt að hafa í huga að útbungun á myndgreiningu þýðir ekki endilega að hún sé orsök verkjanna. Margir geta verið með breytingar á diskum án þess að finna fyrir einkennum.


Einkenni við útbungun í mjóbaki

Einkenni geta verið mjög mismunandi eftir einstaklingum og fara meðal annars eftir því hvar útbungunin er staðsett og hvort hún ertir eða þrýstir á taug.

Algeng einkenni geta verið:

Verkur eða óþægindi í mjóbaki

Stífleiki í baki

Verkur sem leiðir niður í rass eða fót

Dofi eða náladofi í fæti

Breytt tilfinning í fótlegg eða fæti

Í sumum tilfellum máttleysi í fæti

Ef taug í mjóbakinu verður fyrir ertingu getur verkurinn leitt eftir taugabrautinni niður í fót. Þetta er oft kallað settaugarverkur (ischias).

 

Hvar í mjóbakinu kemur útbungun helst fram?

Útbunganir og aðrar breytingar á diskum eru algengar í neðri hluta mjóhryggjarins. Algeng svæði eru á milli hryggjarliða L4-L5 og L5-S1.

Ef útbungun á þessum svæðum hefur áhrif á taug getur það meðal annars valdið verkjum eða skyntruflunum sem leiða niður í annan fótinn.


Hvernig myndast útbungun?

Diskarnir í hryggnum verða fyrir miklu álagi yfir ævina. Með tímanum geta orðið breytingar á byggingu og eiginleikum diskanna og í sumum tilfellum getur hluti disksins farið að búgna út.

Ýmsir þættir geta haft áhrif á álagið á mjóbakið, meðal annars:

Endurtekið eða mikið álag

Þungar lyftingar

Langvarandi kyrrseta eða óhagstætt álagsmynstur

Aldurstengdar breytingar á diskum

Erfðaþættir

Reykingar

Það er þó sjaldnast hægt að benda á einn ákveðinn þátt sem eina orsök útbungunar.

 

Hver er munurinn á útbungun og brjósklosi?

Hugtökin eru stundum notuð á víxl en lýsa ekki nákvæmlega sama ástandinu.

Við útbungun bungar diskurinn út en ytri hluti disksins er að mestu enn heill.

Við brjósklos verður rof á ytra lagi disksins þannig að innra efni disksins getur þrýst út.

Bæði ástönd geta þó valdið svipuðum einkennum ef taug verður fyrir ertingu eða þrýstingi.

 

Þarf alltaf að fara í segulómun?

Nei.

Greining á vandamálum í mjóbaki byggist oft fyrst og fremst á sjúkrasögu og líkamsskoðun. Við skoðun er meðal annars hægt að meta hreyfingar, styrk, skyn og viðbrögð og kanna hvort einkenni bendi til taugaertingar.

Segulómun getur sýnt breytingar á diskum og öðrum mjúkvefjum en niðurstaðan þarf alltaf að vera metin í samhengi við einkenni og skoðun. Það er vegna þess að hægt er að sjá breytingar á hryggnum hjá einstaklingum sem eru ekki með verki.

 

Hvað er hægt að gera við útbungun í mjóbaki?

Meðferð fer eftir einkennum og ástandi hvers einstaklings.

Í mörgum tilfellum er áhersla lögð á að halda einstaklingnum eins virkum og mögulegt er og vinna markvisst með hreyfingu og endurhæfingu.

Meðferð getur meðal annars falið í sér:

Sérsniðnar æfingar

Sjúkraþjálfun

Fræðslu um álag og hreyfingu

Aðlögun að daglegum athöfnum

Verkjastjórnun eftir þörfum

Smám saman aukið álag og styrktarþjálfun

Markmiðið er ekki eingöngu að minnka verki heldur einnig að hjálpa einstaklingnum að byggja upp styrk, sjálfstraust í hreyfingu og getu til að sinna daglegu lífi og íþróttum.

 

Hversu lengi tekur að jafna sig?

Batatími er mjög mismunandi og fer eftir einkennum, hversu mikil taugaerting er til staðar og hvernig líkaminn bregst við meðferð og álagi.

Margir með bráða verki í mjóbaki ná verulegum bata á fyrstu vikunum. Mikilvægt er að horfa á þróun einkenna yfir tíma frekar en að einblína eingöngu á niðurstöðu úr myndgreiningu.

Ef einkennin eru viðvarandi, versna eða hafa veruleg áhrif á daglegt líf getur verið mikilvægt að fá mat hjá heilbrigðisstarfsmanni.

 

Hvenær þarf að leita strax aðstoðar?

Í flestum tilfellum er útbungun í mjóbaki ekki hættuleg, en ákveðin einkenni geta bent til alvarlegri taugaþrýstings.

Leitaðu strax læknisaðstoðar ef þú færð:

Skyndilegt eða vaxandi máttleysi í fæti/fótum

Verulegan dofa á svæðinu kringum kynfæri eða endaþarm

Erfiðleika við að stjórna þvagblöðru eða hægðum

Önnur hratt versnandi taugaeinkenni

 

Það mikilvægasta er ekki alltaf það sem sést á myndinni

Útbungun á segulómun segir aðeins hluta sögunnar.

Það sem skiptir mestu máli er hvernig einstaklingurinn líður, hvaða einkenni hann hefur og hvernig líkaminn bregst við hreyfingu og álagi.

Rétt mat og markviss endurhæfing geta hjálpað mörgum að komast aftur til eðlilegra athafna og hreyfingar.

Eftir aðgerð

Aðgerðir geta verið stór inngrip fyrir stoðkerfið. Endurhæfingin og fyrstu skref eftir aðgerð eru mikilvæg til að líkaminn geti náð fullum styrk aftur og hefur mikil áhrif á tíma í bataferli.

Lesa nánar

Verkir í hné?

Hnéverkir er algengt stoðkerfis vandamál. Orsökin geta verið mismunandi, þau geta komið til vegna trauma/áverka á hnéð eða ofálags. Eftir því hvers konar meiðsli um sé að ræða er meðferðin og nálgunin mismunandi.

Í þessum pistli förum við yfir nokkrar týpur af hné vandamálum og hvað er til ráða.

Lesa nánar

Ökklatognun - Hvað er til ráða?

Tognun á ökkla verður þegar ökklinn teygist skyndilega. Það getur leitt til þess að blæðing eða bólga myndast á ökklanum. Ökklatognanir eru sársaukafullar og hafa áhrif á virkni og hreyfugetu ökklans. Rétt enduhæfing er forsenda til góðs bata.

Lesa nánar

Hvað er vöðvabólga?

Vöðvabólga er orð sem fólk notar oft þegar þau eru með verki/stífleika í hálsi og herðum.

En hvað er vöðvabólga?

Lesa nánar

Hvað eru verkir?

Guttormur Naprapat fer yfir það í stuttu myndbandi hvað verkir eru og hvað það er sem gerist í taugakerfinu.

Lesa nánar

Hvað á ég að æfa?

Hvaða tegund þjálfunar skilar mestum árangri fyrir heilsuna?

Hér fer Guttormur Naprapat yfir það í stuttu myndbandi.

Lesa nánar

Hvað er brjósklos?

Brjósklos er niðurbrot/slit á disknum sem liggur milli tveggja hryggjarliða. Brjósklos getur verið allt frá því að vera einkennislaust (þú finnur ekki fyrir verkjum), til þess að valda miklum verkjum með leiðslu út í hendur og fætur. 

Lesa nánar

Hálsrígur - hvað er til ráða?

Hálsrígur lýsir sér sem verkur eða stífleiki í hálsi ásamt því að hreyfigetan í hálsinum verður takmörkuð. Fólk fær oft hálsríg eftir hafa sofið næturlangt í ”rangri líkamsstöðu” eða eftir skyndilega hreyfingu á hálsinum.

Lesa nánar

Þrjár æfingar sem þú ert ekki að gera fyrir þín mjóbaksvandamál!

Arnór Naprapat fer yfir það í stuttu myndbandi hvaða æfingar hjálpa þér með þín mjóbaksvandamál!

Lesa nánar

Þrjár æfingar sem þú ert ekki að gera fyrir öxlina þína!

Arnór Naprapat fer yfir það í stuttu myndbandi hvaða æfingar hjálpa þér með þín axlar vandamál!

Lesa nánar

Hvað er tennisolnbogi?

Tennisolnbogi er algengt stoðkerfis vandamál í samfélaginu í dag. Tennisolnbogi veldur sársauka á úthlið efri framhandleggsins og er yfirleitt af völdum ofálags.  Verkirnir geta komið skyndilega og leitt til skerta starfsgetu. 

Lesa nánar

Vöðvabólga í öxlum

Verkir í öxl eru mjög algengir og oftast vegna impingement/þrengslum í öxl þar sem sinar eða vöðvar verða fyrir bólgum sem gerir að verkum að það verður minna útrými fyrir axlarliðinn að hreyfa sig.

Lesa nánar

Vöðvabólga í hálsi

Verkir í hálsi eru mjög algengir og oftast vegna statísks álags, kyrrsetu við tölvuvinnu eða streitu. Þetta veldur spennu og ójafnvægi í vöðvum og liðum, bæði í hálsinum og kringum hálsinn.

Lesa nánar

Ert þú með höfuðverki?

Höfuðverkir er eitt algengasta stoðkerfis vandamál fólks í nútímasamfélagi. Flestir upplifa höfuðverki einhvern tímann á lífsleiðinni, en fyrir suma getur hann verið tíður og truflandi í daglegu lífi.....

Lesa nánar

Útbugnun í mjóbaki

Útbungun í mjóbaki verður þegar diskurinn sem liggur á milli tveggja hryggjarliða bungar út fyrir sitt eðlilega form. Diskarnir virka meðal annars sem höggdeyfar milli hryggjarliðanna og hjálpa hryggnum að hreyfast mjúklega.

Lesa nánar

Hvað er þursabit?

Þursabit (einnig kallað tak í baki) er algeng tegund bráðs bakverks. Það kemur oft skyndilega, venjulega í mjóbakinu, og getur verið mjög sársaukafullt. Flestir upplifa bakverki einhvern tímann á lífsleiðinni og þursabit er sérstaklega algengt hjá vinnandi fólki á aldrinum 30-50 ára....

Lesa nánar