Háls-tog, léttir á þrýstingi, hjálpar til við vöfðabólgu og höfuðverki.
Háls-tog, léttir á þrýstingi, hjálpar til við vöfðabólgu og höfuðverki.
Náttúruleg lausn á hálsverkjum. Háls-tog skapar tog á hálsinn og léttir þannig þrýsting á diskana, í tilfellum sem um er að ræða útbungun eða brjósklos finnur þú strax gríðarlegan mun.
Share
Hvernig virkar
Háls-tog tækið?
Háls-tog tækið er hannað til þess að viðhalda náttúrulegri kúrfu (20 gráður) í hálsinum ásamt því að létta á þrýstingi á diska / liði og þannig létta á verkjum strax.
Háls-tog tækið í notkun
Hálsvandamál?
Verkir í hálsi og höfði hafa farið ört vaxandi síðustu ár. Ein af ástæðunum er aukin tölvu og síma notkun. Þegar við höllum höfðinu fram þá eykst þrýstingurinn á diska / liði í hálsinum og það veldur oftar en ekki höfuð-, háls-verkjum. Þegar við erum verkjuð erum við þreyttari og verr fyrir kölluð.
Viðurkennd meðhöndlun
Tog á hálsi er áhrifarík og viðurkennd meðhöndlun á hálsvandamálum svo sem brjósklosi, vöðvabólgu eða höfuðverkjum. Meðhöndlun hálsvandamála er oft kostnaðarsöm og tímafrek, Háls-tog tækið getur sparað þér tíma og kostnað vegna þessa.
Heima-meðhöndlun
Loksins alvöru heima-tog! Háls-tog tækið hjálpar þér að vinna á verkjum svo sem höfuðverkjum, vöðvabólgu, brjósklos verkjum eða bara þreytu í hálsi eftir langan vinnudag.
Háls-tog tækið er hannað til þess að skapa tog á hálsinn en einnig til þess að þrýsta á hálsliði og viðhalda réttri kúrfu í hálsinum.
Stjórnaðu þinni líðan að heiman, meðferðin er slakandi, einföld, þægileg, örugg og áhrifarík.
Öruggt og áhrifaríkt
Háls-tog tækið hjálpar þér að ná góðri líkamsstöðu og eðlilegri háls-kúrfu ásamt því að viðhalda / auka vökvastig diskanna í hálsinum.
Rannsóknir sýna að tog er örugg og áhrifarík meðhöndlun á diskum með útbungun og jafnvel brjósklos. Háls-tog tækið skapar tog á hálsliðina / discana ásamt því að hjálpa til við að ná réttri kúrfu í hálsliðina.
Hér getur þú nálgast frekari upplýsingar um tækið.
Guttormur Brynjólfsson
Naprapat / Doctor of Naprapathy
Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef séð “heima-meðhöndlun” sem virkar, ég mæli eindregið með háls og bak tækjunum fyrir ykkur sem viljið losna við vöðvabólgu, verki eða bara létta á spennu eftir langan vinnudag.
Algengar spurningar
Hentar Háls-tog tækið fyrir mig?
Háls-tog tækið er ákafleg áhrifarík og örugg meðhöndlun. Tækið hentar nánast öllum sem ekki hafa farið í meiriháttar aðgerð á hálsi. Ef þú ert í vafa endilega sendu okkur fyrirspurn.
Hversu oft get ég notað Háls-tog tækið?
Það eru í raun lítil takmörk fyrir því hversu oft á dag þú getur notað Háls-tog tækið. Ef þú ert með brjósklos verki á getur þú notað tækið oftar og lengur. Að öllu jöfnu mælum með því að þú notir tækið einu sinni til tvisvar á dag.
Ég lenti í aftanákeyrslu, get ég notað Háls-tog tækið?
Það sem skeður oft í whiplash (aftanákeyrsla) slysum er að liðbönd skaðast og með tíð og tíma missum við kúrfuna (lordosis) í hálsinum. Háls-tog tækið hjálpar þér að fyrirbyggja og endurhæfa þetta vandamál.
Slæmir höfuðverkir, get ég notað Háls-tog tækið?
Algengast er að höfuðverkir eigi upptök sín í hálsinum / hálsliðum. Háls-tog tækið viðheldur réttri stöðu og hreyfigetu í hálsinum og minnkar því líkurnar svo um munar á höfuðverkjum.
Ef tækið hentar mér ekki, get ég skilað því?
Ábyrgð og skilaréttur á þessu tæki er í samræmi við íslensk lög :). Við mælum með að þú notir tækið reglulega í nokkrar vikur áður en þú ákveður hvort tækið hentar þér eða ekki.
Umsagnir
-
Háls-tog
Ég er með brjósklos í hálsi og stundum leiðni niður í hendur, mér er sagt að aðgerð sé ekki málið fyrir mig. Það var mikill léttir fyrir mig að fá Háls-tog, tækið togar hálsinn upp og léttir þrýsting á taugina. Ég mun halda áfram að nota Háls-tog tækið þar til einkennin eru horfin.
-
Mjóbaksfix
Ég vinn sem ljósmóðir, ég hef alltaf þurft að fara í nudd eða einhverja meðhöndlun eftir langar vaktir. Ég fékk Mjóbaksfix tækið lánað til...og ég elska það! Þegar bakið er að kvarta þá leggst ég á tækið sem sér svo um að nudda, hita og ýta mjóbakinu í rétta stöðu, tækið hjálpar mér það mikið að nú þarf ég ekki lengur að leita til sjúkraþjálfara til þess að létta á spennunni / verkjum í mjóbakinu.
-
Hálsfix
Ég lenti í árekstri fyrir 8 árum, við áreksturinn þá missti hálsinn sína náttúrulegu sveigju með þeim afleiðingum að ég byrjaði að þjást af höfuðverkjum. Ég hef þurft að taka bólgueyðandi og verkjastillandi nánast daglega þangað til ég byrjaði að nota Hálsfix, ég nota tækið daglega og get nú í fyrsta skipti í mörg ár verið án verkjalyfja.