Olnbogi

Olnbogaverkir eru algengir og tengjast oft álagi, endurteknum hreyfingum eða áverkum. Algeng vandamál eru meðal annars tennisolnbogi (erting í sinum utan á olnboga), golfolnbogi (erting innan á olnboga) og sinabólgur. Slík meiðsli geta komið fram vegna íþrótta, handavinnu, tölvuvinnu eða annarra endurtekinna hreyfinga.

Meðferðir eins og liðkun, mjúkvefjameðferð, hitameðferð og markvissar teygju- og styrktaræfingar geta hjálpað til við að minnka spennu í vöðvum og sinum, bæta hreyfigetu og draga úr verkjum. Slík meðferð getur einnig aukið blóðflæði og stuðlað að betri bata.