Getur þér liðið betur?

Okkar markmið er að bjóða upp á hágæða vörur fyrir stoð- og taugakerfi sem hjálpa þér að viðhalda eða bæta þína heilsu þannig að þú getir lifað lífinu eins og best verður á kosið.  Netverslunin er samstarf milli TOPPHEILSA.IS og NAPRAPAT.IS sem við erum ákaflega spennt fyrir.   Við erum þess fullviss að saman takist okkur að finna bestu vörurnar fyrir þig og þína heilsu :)

Lausnir fyrir þig?

Hálsfix

Hálsfix er bylting í heima-meðhöndlun. Tækið togar og þrýstir hálsliðum rólega í rétta stöðu ásamt því að gefa þér nudd og infrarauðan hita á meðan meðhöndlun stendur.  Ef þú þjáist af verkjum í hálsi, vöðvabólgu, höfuðverkjum, stífleika eða bara þreytu eftir langan vinnudag þá er Hálsfix tækið sem þig vantar!  Stjórnaðu þinni líðan að heiman, meðferðin er slakandi, einföld, þægileg, örugg og áhrifarík.

SKOÐA VÖRU

Hnéfix

Náttúruleg lausn fyrir aum og stirð hné!
Átt þú erfitt með að standa upp, ganga upp og niður stiga?  Geturðu ekki lengur stundað þína uppáhalds íþrótt vegna hnjáverkja ?
Ef þú vilt einfalda og þægilega lausn á þínum hnéverkjum, þá er Hnéfix varan fyrir þig.  Með Hnéfix finnur þú strax fyrir minni verkjum og meiri hreyfanleika.

SKOÐA VÖRU

Mjóbaksfix

Mjóbaksfix er háþróuð heima-þerapía við bakverkjum.  Tækið skapar dýnamískt tog í mjóhrygginn ásamt því að gefa nudd, infrarauðan hita og rafmagnsþerapíu - Allt í einu tæki!

SKOÐA VÖRU

Háls-tog

Náttúruleg lausn á hálsverkjum. Háls-tog kraginn skapar tog á hálsinn og léttir þannig á þrýstingi á diskana, í tilfellum sem um er að ræða útbungun eða brjósklos finnur þú strax gríðarlegan mun.

SKOÐA VÖRU

Mjóbaksbelti

Mjóbaksbeltið veitir sérlega góðan stuðning við bakið ásamt því að þrísta mjóbakskúrfunni í sína náttúrulegu stöðu.

Ein af ástæðunum fyrir því að við þróum með okkur bakverki er að við byrjum að missa hina náttúrulegu kúrfu í mjóbakinu, samhliða því minnkum við hreyfigetu, aukum vöðvaspennu...og verkirnir koma í bakið á okkur.

Stuðningur Mjóbakbeltisins er eins og áður sagði sérlega góður og reynist því mjög vel m.a. þeim sem eru að kljást við útbunganir eða brjósklos.

Ef þú ert að kljást við bakverki þá  finnur þú strax fyrir meira öryggi í hreyfingum og minni verkjum með G-Belt

SKOÐA VÖRU
  • Hálsfix

    Langir dagar fyrir framan tölvuna hafa skapað mér vandamál í hálsi. Spennan og verkir í hálsi hafa oft á tíðum verið það slæmir að ég hef þurft að fá meðhöndlun. Hálsfix hefur verið bylting fyrir mig, þegar ég finn spennu / verki í hálsi þá leggst ég á Hálsfix og tækið sér um restina.  Ég hef ekki fundið þörf fyrir að fá meðhöndlun eftir að ég byrjaði að nota Hálsfix

  • Mjóbaksfix

    Ég vinn sem ljósmóðir, ég hef alltaf þurft að fara í nudd eða einhverja meðhöndlun eftir langar vaktir.  Ég fékk Mjóbaksfix tækið lánað til prufu...og ég elska það! Þegar bakið er að kvarta þá leggst ég á tækið sem sér svo um að nudda, hita og ýta mjóbakinu í rétta stöðu, tækið hjálpar mér það mikið að nú þarf ég ekki lengur að leita til sjúkraþjálfara til þess að létta á spennunni / verkjum í mjóbakinu.

  • Háls-tog

    Ég er með brjósklos í hálsi og stundum leiðni niður í hendur, mér er sagt að aðgerð sé ekki málið fyrir mig. Það var mikill léttir fyrir mig að fá Háls-tog, tækið togar hálsinn upp og léttir þrýsting á taugina. Ég mun halda áfram að nota Háls-tog tækið þar til einkennin eru horfin.